Forseti Íslands afhenti heiðursverðlaunin Orðstír við hátíðlega athöfn á Bessastöðum föstudaginn 26. apríl og er það í þriðja sinn sem þau eru veitt. Tvö hljóta verðlaunin að þessu sinni; þýðendurnir Silvia Cosimini frá Ítalíu og John Swedenmark frá Svíþjóð.
Orðstír, heiðursverðlaun fyrir þýðingar íslenskra bókmennta á erlendar tungur, eru afhent annað hvert ár í tengslum við Bókmenntahátíð. Viðurkenningin er veitt einstaklingum sem hafa þýtt verk úr íslensku á annað mál með vönduðum hætti og með þeim árangri að aukið hafi hróður íslenskrar menningar á erlendum vettvangi.
Hrefna Haraldsdóttir, framkvæmdastjóri Miðstöðvar íslenskra bókmennta, flutti ávarp við afhendinguna og kynnti Orðstírshafana 2019. Í ávarpi sínu lýsti hún jafnframt markmiðum og tilgangi verðlaunanna og ræddi um mikilvægi góðra þýðenda fyrir íslenska menningu og útbreiðslu bókmenntanna.
Samanlagt 120 þýðingar á íslenskum verkum
Íslenskar bókmenntir eru víða í sókn. Það lætur nærri að þýðingar á erlend tungumál hafi þrefaldast síðastliðinn áratug. Ötulir þýðendur á borð við þau John Swedenmark og Silviu Cosimini eru greininni afar dýrmæt. Án þeirra væri þessi vegferð íslenskra bókmennta á erlendri grund ekki eins blómleg og raun ber vitni.
Silvia og John eru bæði mikilvirkir þýðendur með brennandi áhuga á íslenskum bókmenntum og tungu. Silvia hefur þýtt samtals um 70 verk úr íslensku á ítölsku og er jafnvíg á ólíkar bókmenntategundir. Meðal íslenskra höfunda sem hún hefur þýtt verk eftir má nefna Halldór Laxness, Hallgrím Pétursson, Guðberg Bergsson, Sjón, Svövu Jakobsdóttur og Arnald Indriðason. John hefur þýtt tæplega 50 verk úr íslensku á sænsku, meðal annars eftir rithöfundana Gerði Kristnýju, Jón Kalman, Þórarin Eldjárn, Lindu Vilhjálmsdóttur, Steinunni Sigurðardóttur og Gyrði Elíasson. Samanlagt hafa farið frá þeim einar 120 vandaðar þýðingar. Fjölhæfni þeirra og fagmennska er einstök og starf þeirra fyrir íslenskar bókmenntir ómetanlegt.
Dagskrá í Veröld, húsi Vigdísar
Þau Silvia og John komu fram með þeim Sigurbjörgu Þrastardóttur, rithöfundi og Þorleifi Haukssyni, fræðimanni, í Veröld, húsi Vigdísar Finnbogadóttur, sunnudaginn 28. apríl.
Um ORÐSTÍR
Að ORÐSTÍR standa Miðstöð íslenskra bókmennta, Bandalag þýðenda og túlka, Íslandsstofa, embætti Forseta Íslands og Bókmenntahátíð í Reykjavík. Í valnefnd að þessu sinni sátu fyrir hönd þessara aðila þau Kristján Jóhann Jónsson, Magnea J. Matthíasdóttir, Inga Hlín Pálsdóttir, Örnólfur Thorsson og Stella Soffía Jóhannesdóttir.