Í dag er Dagur bókarinnar og óskum við öllum er koma að þýðingum, skrifum, útgáfu, sölu og lestri bóka innilega til hamingju með daginn! Í tilefni dagsins opnum við formlega nýju heimasíðuna okkar og birtum yfirlýsingu sem lesin var upp á Gljúfrasteini þegar Íslensku þýðingaverðlaunin voru afhent 22. febrúar sl.

 

Gervigreind og þýðingar

– yfirlýsing frá Bandalagi þýðenda og túlka

Líkt og menningargeirinn eiga bókmennta- og skjáþýðingar undir högg að sækja vegna örrar þróunar í vélþýðingum sem byggja á gervigreind og ógna störfum þýðenda og gæðum þýðinga. Vélþýðingar og gervigreind geta nýst fólki í sínu daglega amstri en þegar kemur að bókmenntaþýðingum, skjáþýðingum og sköpun vilja þýðendur ekki að gervigreind verði raunhæfur valkostur.

Við viljum vara við notkun gervigreindar í okkar starfsgrein og almennt á sviði menningar- og hugverka.

Við teljum að notkun gervigreindar við þýðingar og skrif

  • skapi hættu á að örtungumálið okkar verði einsleitara og einhæfara.
  • verði til þess að þýðingar verði vélrænar og gæði þeirra mun verri.
  • muni aldrei ná þeim hughrifum sem mannlegur hugur býr yfir, svo sem tilbrigðum, tilfinningum og innsæi, atriðum sem gefa textanum líf og gera sögu áhugaverða.
  • leiði til lakari kjara fyrir þýðendur og rithöfunda.
  • setji höfundarréttarmál í uppnám.

Þess vegna skorum við á

  • bókmenntaþýðendur að hafna notkun gervigreindar sem tæki við þýðingar.
  • útgefendur að tiltaka á skýran og sýnilega hátt ef notast hefur verið við gervigreind við gerð þeirra ritverka sem gefin eru út á þeirra vegum. Að auki hvetjum við útgefendur til að tiltaka í samningum sínum að ekki skuli notast við gervigreind við þýðingar og skrif og að ekki sé leyfilegt að mata gervigreindina með þeim texta sem samningur er gerður um.
  • opinbera aðila að veita ekki styrki til verka sem eru unnin að hluta til eða öllu leyti með aðstoð gervigreindar.
  • alla höfunda hugverka að hafna hvers kyns notkun gervigreindar í sköpunarferlinu.
  • almenning sem les bækur, horfir á kvikmyndir og metur verkin sem við sköpum að styðja okkur með því að hunsa þau verk sem hafa orðið til með hjálp gervigreindar.

 

Reykjavík, 22. febrúar 2025